Með Jet Budget er hægt að straumlínulaga fjárhagsáætlanir í Dynamics hubúnaðarvöndlinum og gera þær einfaldari, aðgengilegri og réttari.
Með sjálfvirku aðgengi að upplýsingum úr fjárhagskerfinu í Excel verður vinnan auðveldari við áætlanagerðina þar sem ekki þarf lengur að hafa áhyggjur af því hvort tengingar við fjárhagskerfið í Excel virki. Jet Budgeting eykur yfirsýn og notendur geta með öruggari og fljótlegri hætti unnið við áætlanir, stemmt af tölur og leiðrétt eftir því sem við á.
Úrvinnsla
Að lokinni áætlanagerðinni er áætlunin vistuð og fer þá í gang keyrsla sem stofnar gögnin í gagnagrunni þannig að þau verða ávallt aðgengileg og tilbúin til þess að vinna með nánar í teningi eða hverju því greiningartóli sem menn óska sér. Á svipstundu er hægt að nálgast raungögn og skoða með hliðsjón af áætluðum tölum og þannig bregðast strax við innan fyrirtækisins, ef þörf krefur.
Áætlanagerðir
Hægt er velja á milli ólíkra tegunda áætlana s.s. Top Down Budgeting, Bottom up Budgeting, Zero Based Budgeting eða Hybrid Budgeting.