Alhliða rekstrar- og áætlanakerfi fyrir fyrirtæki
Fjárhagsáætlanir og spálíkön
Fjárhagsáætlanir eru ekki lengur byrði á fyrirtæki. Bættu nákvæmni spálíkana, minnkaðu áhættu og auktu sjálfvirkni.
Skýrslur og greiningar
Settu upp skjáborð sem gefa þér ítarlegar og auðskiljanlegar upplýsingar um stöðu fyrirtækisins og afkasta getu þess með fáeinum músasmellum.
Samstæðuuppgjör og endurskoðun
Forritið eykur skilvirkni á milli móður- og dótturfyrirtækja með alls kyns tólum fyrir samstæðuuppgjör. Prophix sjálfkeyrir gagnauppfærslur.
Verkefnaflæði og sjálfvirkni
Gerðu endurteknar aðgerðir sjálfvirkar og búðu til skilvirkt verkefnaflæði. Sparaðu tíma og vertu viss um nákvæmni skýrslna.
Farðu framar Excel og náðu árangri
Excel er líklega algengasta tólið sem notað er í fjárhagsáætlanagerðir og spálíkön, en þau verða fljótt villufull, óörugg, tímafrek og erfið viðeignar.
Með Prophix útilokar þú þessa misbresti, en ert með viðmót sem þú þekkir. Að auki hefurðu lausn sem hefur fleiri og betri notkunarmöguleika en nokkuð Excel skjal gæti haft.
Allir notendur hafa ávinning af meiri framleiðni, sem skilar sér í tímaaukningu til áætlanagerða og eykur afkastagetu skipulagsheildarinnar allrar.
Kláraðu fjármálin á einfaldari og sjálfvirkari hátt
Endurteknar aðgerðir, svo sem gagnainnlestur, skýrslugerð og fjárúthlutun eru gerðar sjálfvirkar og einfaldar.
Gerðu nákvæmar og greinagóðar fjárhagsáætlanir, spálíkön og skýrslur auðveldlega með því að lesa inn gögn frá öðrum hugbúnöðum og gagnavöruhúsum.
Með Prophix Automation Center geta fjármáladeildir nýtt sér hugbúnaðinn til að tengja saman ferla og tryggja að mikilvægum skrefum er ekki gleymt.
Skýjalausn eða staðbundin uppsetning
Með Prophix hefur þú sveigjanleikann til að hanna eiginleika forritsins eftir þínum þörfum, hvort sem það er í skýinu eða á þínum serverum.
Hvort sem þú ákveður að láta Prophix aðstoða við innviði kerfisins eða þú vilt gera það sjálfur, þá færðu fulla virkni og frábært notandaviðmót.
Skilvirkara áætlanaferli með Prophix
Árangursstjórnun byggist á heildarhugsun þar sem samhengi tölulegra upplýsinga við aðstæður fara saman. Markmiðasetning og mælikvarðar skipta gríðarlegu máli þar sem forgangsröðun í rekstri, ytri áhrif, breytingar og fjármálalegt hæfi tengjast saman með heildrænni hugsun. Mælikvarðar, endurtekningar og agi einkenna góða árangursstjórnun.
Innleiðing á Prophix felur í sér að nokkrar hugbúnaðareiningar eða sérstakar kerfiseiningar eru sameinaðar í búnað sem veitir þér öfluga yfirsýn.
Sem dæmi má nefna að þú notar upplýsingar úr fjárhagskerfi til þess að fylla út ýmis skjöl til að áætla. Skýrslur úr mörgum kerfum er svo notaðar til að fá upplýsingar um raunstöðu og til að bræða saman árangur og áætlun. Þú notar svo þriðju aðferðina til að mæla útkomuna. Með Phropix árangursstjórnun færðu breiðari sýn á reksturinn, áætlanagerðina og hvernig markmiðin koma út.
Þetta virðist oft á tíðum yfirgripsmikið ferli og tafsamt en flestir taka upp hluta lausnarinnar til að byrja með. Algengt er að byrja á fjárhagsáætlun og færa sig svo dýpra inn í lausnina.
Gríðarlegur ávinningur næst með því að nýta sér samræmdan hugbúnað og dreifa ábyrgð áætlanagerða til framkvæmdastjóra sviða og deilda og þar með tryggja að þeir hafi puttann á púlsinum er reksturinn varðar. Fjárhagsáætlanir eru góðar en það þarf að bæta við ýmsum utanaðkomandi breytum til að tryggja góða árangursstjórnun.
Það er ekki einkamál fjármálastjórans að útbúa fjárhagsáætlanir þó hann kunni að vera ábyrgur fyrir áætlanagerðinni. Gott er að nýta samræmdan hugbúnað þannig að ekki sé verið að bræða saman mismunandi skjöl. Ytri aðstæður geta breyst á svip stundu og þá getur tekið of langan tíma að aðlaga gamla kerfið að breyttum aðstæðum eða búa til mismunandi sviðsmyndir, sem er alltaf gott að eiga.
Bóka ráðgjöf
“A budget is
telling your
money where
to go instead
of wondering
where it went.”― Dave Ramsey