NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR

VERÐ: 47.000kr.

Næsta námskeið: Engin dagsetning

Kennslutími frá 9:00 til ca. 16:00

POWER BI NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR

Power BI er ört vaxandi viðskiptagreindartól frá Microsoft sem meðal annars gerir notendum gagna kleift að vinna með og deila gögnum.
Lausnin er einföld í notkun og býður upp á fjölbreyttar leiðir að framsetningu og deilingu gagna, sameinuðum úr mörgum áttum (gagnalindum).

Að námskeiðinu loknu verða þátttakendur færir um að ná í og tengjast gögnum, móta eigin skýrslur og mælaborð og deila með öðrum.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

Innlestur og uppsetningu gagna

  • Innlestur gagna úr mismunandi grunnkerfum
  • Hreinsun gagna
  • Vinnu með gögn (samþættingu gagna, filteringar o.fl.)
  • Innslátt gagna
  • Uppsetningu á gagnamódeli fyrir skýrslugerð

Framsetningu gagna

  • Birtingu gagna í töflum og á myndum
  • Samvirkni milli mynda og taflna
  • Síur, stigveldi, flokkanir á gögnum
  • Dagsetningar
  • Gerð mælikvarða og útreiknaðra dálka

Birtingu gagna

  • Gerð mælaborða
  • Hvernig deila á greiningum með öðrum notendum
  • Hvernig birta á efni á netinu
  • Hvernig birta á efni á snjalltækjum

 

    Verð: 47.000 kr.

Power BI

Fyrir hverja:

Námskeiðið er sniðið að öllum þeim sem vilja kynnast þeim lausnum sem Power BI hefur upp á að bjóða fyrir mælaborð og skýrslugerð auk þeirra sem vilja öðlast meiri færni í gagnavinnslu og framsetningu gagna.

Æskilegt er að þátttakendur hafi unnið með gögn og gagnaframsetningu eða hafi brennandi áhuga á því.

Praktísk atriði:

Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með uppsettu Power BI Desktop, sem má nálgast hér.

Nánari upplýsingar varðandi uppsetningu er hægt að finna hér.

Annars er velkomið að koma degi fyrr og við aðstoðum þig með uppsetningu án endurgjalds.

Hver er þinn ávinningur:

Kynning á Power BI

  • Færni til að greina gögn frá mismunandi kerfum og geta sett þau fram á skiljanlegan hátt.
  • Nýting á sjálfvirkni til að uppfæra og losna þar með við óþarfa endurtekningu í vinnuferli.
  • Skýrslugerð og hönnun á mælaborði.
  • Auðveldari leið til að vinna með og sækja gögn.
  • Þekking á notkun mælaborðs og greininga á spjaldtölvum/snjallsímum.
  • Samþættir möguleikar sem Power BI hefur upp á að bjóða í samhengi við dagleg störf og verkefni.

SKRÁNING