ValuePlan kerfið er hraðvirkt, fljótlegt í innleiðingu og tengist öðrum kerfum með einföldum hætti.
Viðmót kerfisins er hefðbundið client/server viðmót, vefviðmót eða viðbót í Excel.
ValuePlan styður jafnt við hefðbundin vinnubrögð og hlaupandi/breytudrifna áætlanagerð, s.s. í Beyond Budgeting aðferðafræðinni. Meðal helstu kosta kerfisins má nefna:
· Ótakmarkaður fjöldi vídda, mælikvarða og viðfangsefna. Fullur sveigjanleiki í uppbyggingu líkana.
· Sjálfvirk breytingaskráning og notendavænt viðmót til að greina breytingar.
· Fullkomin aðgangsstýring í þægilegu viðmóti.
· Sveigjanleg áætlunartímabil (12, 13, 15 mánaða, 3ja eða 5 ára, eftir árum, mánuðum eða fjórðungum).
· Fullur stuðningur við hlaupandi áætlanir / rúllandi fjárhagsspár.
· Góð yfirsýn yfir ferlið og stýring samþykktarferla
· Fullur stuðningur við mismunandi gjaldmiðla og tungumál
· Þægileg tenging við Excel
· Full samþætting við greiningarlausnir
· Lifandi grafísk greining, gagnvirk gröf og stjórnborð
· Og síðast en ekki síst: Innleiðingartími mældur í dögum eða vikum, ekki mánuðum eða árum